Góðan dag, velkominn til jarðarinnar. Láttu ekki ljósið blinda þig, þú venst því eftir smástund. Fáðu þér að borða, við eigum nóg af mat. Fáðu þér að sofa ef þú ert þreyttur, við eigum nóg af draumum til að lána þér. Láttu eins og heima hjá þér. Fæturna upp á borð, losaðu beltið, farðu úr skónum. Hérna er listi af hlutum sem þú getur eytt ævinni í, þú velur hvað sem þú vilt og við sjáum um restina. Veldu þér áhugamál, kunnáttu og starf og vertu svo öskrandi kátur í hvert skipti sem þú lærir eitthvað nýtt. Vertu bara viss um að hvert sem þú ferð og hvað sem þú gerir, ekki halda að þú vitir hvernig lífið mun æxlast. Þú hefur ekki hugmynd um það.
Mikið getur maður verið vitlaus. Að halda að maður hafi eitthvað um heimsmyndina að segja. "Heimurinn ER svona og hinseginn." Nei, því miður. Þú hefur bara upplifað brotabrot af honum og þér fannst hann svona. Það er ekkert sem segir að nokkur annar maður sé sammála þér, eða þá að þetta sé á nokkurn hátt rétt staðhæfing. Það að ég rífist og skammist og kvarti yfir því að heimurinn sé vondur, illur og ósanngjarn er kjánalegt út af því að þetta er bara upplifunin sem ég hef af honum. Það er eins og að horfa á einn þátt af Ghost Whisperer og gera upp hug sinn varðandi alla sjónvarpsþætti sem gerðir hafa verið (þ.e. að allir þættir séu gjörsamlega glataðir). "Þetta er bara svona." Nei, því miður. Ekkert endilega.
Þess vegna er svo skemmtilegt að lenda í aðstæðum sem breyta því hvernig þú lítur á tilveruna. Svona kaflaskipti í lífinu þar sem þú getur með hreinni samvisku yfirgefið þann sem þú varst, ekki með eftirsjá heldur lærdómsblik í augunum, og orðið eitthvað annað. Þetta er afskaplega svipað og þegar Pokémon skrímsli umbreytast og verða öflugri. Jújú, Pikachu var alveg sætur fyrst með skottið sitt og brosið, en eftir level up-ið gerir hann meiri damage og er sneggri. Það þarf ekkert að ræða það hvort er skárri kostur. Það er undarlegt hvernig lífið kemur manni á óvart með því að láta mann halda að heimurinn sé á einn veg og koma svo með aðstæður þar sem eitthvað nýtt er kynnt til sögunnar sem afsannar allt sem þú hélst. Eitthvað gott. Eitthvað Anna-ð.
Annars eru hér nokkur youtube myndbönd sem ég var að uploada:
Ég á rafmagnstrommunum mínum
Lífsins labb - Söngkeppnisatriði Das Dos Pervertos 2006
The Mirror Me - Stuttmynd síðan í fyrra
Kv. Guðni
Posted at 10:39 pm by 23glb
 |  |  |
svp March 26, 2008 07:47 AM PDT
Hver er hún? |
 |

 |  |  |
Aron March 19, 2008 12:18 AM PDT
Já, sammála Ragga, nát. er málið...allavega nennti ég engan veginn að lesa þetta. |
 |

 |  |  |
ragnarhólm March 10, 2008 12:24 PM PDT
vá ég er ánægður með að hafa farið á náttúrufræðibraut. þetta er of mikið fyrir mig. |
 |

 |  |  |
Tryggvi Páll March 10, 2008 04:49 AM PDT
Já sæll, ég var á svokölluðum bloggrúnti í vinnunni og lenti hér fyrir algjöra tilviljun, ég get svarið að það var ekki mér að kenna.
Ég kommenta nú yfirleitt ekki á þessi blogg sem ég leyniles en ég held ég geri undantekningu í þetta skiptið þar sem þessi færsla kveikti með mér neista sem síðar varð að þessu hér fyrir neðan.
Ég held að það sé alveg rétt hjá þér að maður hafi aðeins upplifað brotabrot af því sem þessi heimur hefur upp á að bjóða, eflaust minna. Miklu minna. Ég kemst að því með hverri vikunni sem líður að heimurinn er stærri en ég hélt, ég kemst að því einmitt með hjálp nýrra aðstæðna, aðallega þó fjarlægðar.
Vissulega upplifir hver og einn heiminn á sinn hátt og það fer eftir ýmsu hvernig sú upplifun er, gildum og viðmiðum og fleiru skemmtilegu úr Fél 103. Hinsvegar má til sanns vegar færa að þó menn sjái heiminn í misbjörtu ljósi þá segir það í raun ekkert um hvernig heimurinn er í raun og veru. Hver hefur sín gleraugu en það þarf að horfa í gegnum þau til þess að sjá eitthvað sem fyrir er. Hvernig sem við sjáum heiminn þá breytir það því ekki að heimurinn ER einhvernveginn. Það er erfitt að henda reiður á hvernig hann er nákvæmlega, en heild allra mannlegra (allra lífvera ef út í það farið) gjörða gerir heiminn akkúrat einhvernveginn.
Ég held að sá skilningur að hver og einn geti ekki tekið upp pensil til að breyta heimsmyndinni megi kalla misskilning. Ef við horfum smátt á þetta þá breytirðu heimsmyndinni t.d. með því að láta aðeins einni manneskju líða aðeins betur en henni leið áður en þú komst inní myndina hennar. Ef við horfum á þetta frá stærra sjónarhorni þá hafa einstakir menn breytt heiminum, einmitt með því að hafa áhrif á aðra. Sagan er uppfull af mönnum sem hafa risið gegn straumnum, haft með því áhrif á fjölda fólks og með þunganum sem myndast breytt heiminum til góðs. Það er alveg hægt að breyta heiminum og eins og flest hefst það í huga manns sjálfs. Ég er ekki að segja að það sé auðvelt en það er hægt.
Í dag virðist heimurinn kannski ekkert alltof bjartur staður, ýmsir skuggabaldrar hafa dregið hulu fyrir sýn alltof margra en það versta sem hægt er að gera er að sætta sig við hlutina. Ég trúi því að í grunninn sé heimurinn fallegt málverk og líkar illa hvað ýmsir virðast staðráðnir í að skvetta svartri málningu yfir hann allan. Hver og einn málar sína eigin mynd, en sú mynd er bara punktur í stóra málverkinu og því er eins gott að vanda til verksins, svo sem flestir geti nú notið þess.
Eða það finnst mér allavega. |
 |

 |  |  |
Elsa March 6, 2008 10:40 AM PST
Ég las og mér líkaði :) |
 |

 |  |  |
Anna March 6, 2008 12:14 AM PST
einsog ég sagði "There are many things that make a person" :D sjáumst |
 |