Hérmeð hefur þú gengið inn í ríki Guðnans og sökum háþróaðs tæknibúnaðar 21. aldarinnar veit hann núna heimilisfangið þitt, símanúmer, kennitölu og skóstærð. Vertu velkomin(n).

<< December 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Saturday, January 03, 2009
Beil

Ef eitthvað er þess virði að það sé gert, þá er það þess virði að það verði gert vel.

Þ.a.l. er eitthvað sem ekki er gert vel, ekki þess virði að það sé gert.

Þessi bloggsíða er ekki vel gerð.

Því er áætlun mín einföld: Beil.

Þessi bloggsíða hefur ekki verið að standa sig síðustu átján mánuði eða svo. Loforð voru gefin varðandi komik og alltaf stóð síðan til endurbóta. Því miður virðist ég einfaldlega ekki hafa áhuga á því að blogga lengur. Það er ekki mitt "thing" lengur. Það var það í MA. Ekki lengur.

Af mér er þetta að frétta: Ég er í HÍ í kvikmyndafræði, fer hugsanlega í LHÍ á næsta ári, á mjög sæta kærustu sem heitir Anna og er úr Bárðadalnum, leigi með meistara Ólafi Sveini og frú íbúð stutt frá Kringlunni, stefni á heimsyfirráð innan sjö mánaða og er enn afar rauðhærður.

Þannig að: Þessi bloggsíða er hérmeð lögð niður. Ég þakka öllum þeim sem lögðu leið sína hingað í gegnum tíðina, síðan sjálf er orðin ca. fjögurra ára. Það er ágætis líftími fyrir bloggsíðu og því er engin ástæða til að gráta hana. Hún var löngu farin hvort eð er. Eina eftirsjá mín er að gleyma myndinni af Sigurði í kvennmansklæðum, hún var uppi í rúmt ár. Það stóð ekki til.

Takk kærlega fyrir mig.


Posted at 12:03 pm by 23glb
Álit (2)  

Sunday, October 05, 2008
Komik nr. 53

"Gamli, gamli, couple of times, maður."

Dagvaktin er byrjuð. Bú-fokking-ja.


Posted at 05:28 pm by 23glb
Álit (3)  

Wednesday, September 17, 2008
Borg óttans

Ég afsaka bloggleysið að undanförnu en þannig er mál með vexti að sumarið í heild sinni var svo uppfullt af vinnu og öðrum óþarfa að stórmál var að komast á netið, hvað þá að finna mér tíma til að sletta úr viskuskálum mínum yfir viðstadda. Eflaust lítur málið þannig út að ég hafi tekið full-stórt upp í mig með því að lofa fleiri komikum en örvæntið ekki. Einu sinni í mánuði, í lokin nánar tiltekið, birtist komik. Það kom ekkert í september og því mun það birtast á næstu dögum.

Annars er það að frétta af mér að ég er byrjaður í Háskóla Íslands í kvikmyndafræði með einum Engilbert Aroni og skemmti mér konunglega. Ég leigi íbúð á fjórðu hæð í Fellsmúlanum með Önnu, Óla og Hörpu og hingað til hefur það gengið eins og í sögu. The Chillpad býður alla velkomna því aldrei er of mikið af chilluðu fólki á sama stað. Nema kannski í gamla 4.H...

Ég er enn að skrifa í Hann/Hún tímaritið eins og vitlaus maður, en fyrir þá sem geta ómögulega orðið sér úti um það vil ég benda á netútgáfu blaðsins á www.htimarit.is

Pacman - Bara saklaus tölvuleikur?


Posted at 09:33 am by 23glb
Tjáðu þig  

Tuesday, July 08, 2008
Komik nr. 52

Starfsheiti mitt á Hótel Eddu er yfirþerna. Ég er með master-lykil að allri nýju vistinni sem sannar það. Óttist mig.

Bloggar.is síðan mín er orðin full af myndum. Ég ætla að prufa að birta þetta í gegnum Facebook, sjáum til hvort gæðin haldist þau sömu.


Posted at 06:54 pm by 23glb
Álit (7)  

Wednesday, June 18, 2008
The rise of the Phoenix

Jæja. Það hlaut að koma að því fyrr eða síðar. Síðasta MA komik birtist á þessari síðu þann 17. júní 2007. Mér fannst því viðeigandi að hefja ævintýrið að nýju á sama degi á þessu ári. Svo vildi til að ég festist austur í Bárðadal í gær án tölvunnar minnar og gat því ekkert gert varðandi slík mál. Hvort þetta verður upphaf að 50 komiks í viðbót verður að koma í ljós. Það er ekkert víst í þessum heimi.

Arthúr, Garfield og Cyanide & Happiness: Bring it on. MA Komiks eru komin aftur.


Posted at 10:12 pm by 23glb
Álit (7)  

Saturday, May 17, 2008
Júní


Posted at 03:52 pm by 23glb
Álit (4)  

Tuesday, April 22, 2008
Listaháskóli Íslands - Deildin Fræði og Framkvæmd

Hm. Ég komst ekki inn.

...hvað nú?


Posted at 10:33 pm by 23glb
Álit (2)  

Friday, March 28, 2008
Djúpa laugin

Jæja, no going back now, eins og maðurinn sagði. Ég er búinn að sækja um á netinu, senda inn skriflega umsókn og skila möppu með fimm verkum. Já, ég er opinberlega búinn að sækja um í Listaháskóla Íslands.

Deildin ku vera Fræði og framkvæmd, en það er deild sem er undir sama hatti og leiklistardeildin. Sjáum til hvað gerist. Í möppunni, eða portifólíóinu, sem ég skilaði inn voru fimm verk sem ég hef unnið að í gegnum tíðina.

MA komiks - Allar 50 teiknimyndasögurnar
Hlekkir - Örleikrit sem var sett upp á stóra sviði Þjóðleikhússins í fyrra
Jólagreinin í Hann/Hún tímaritinu - Grein um karlmannlegustu leiðina til að útvega jólatré
Riddarinn - Smásaga
Work in progress - Heimspekilegt spennuleikrit um sársaukavél

Krossið putta, fætur og eyru. Vonum það besta. Það komast 8-10 manns inn.


Posted at 11:12 pm by 23glb
Álit (6)  

Wednesday, March 05, 2008
Eitthvað Anna-ð

Góðan dag, velkominn til jarðarinnar. Láttu ekki ljósið blinda þig, þú venst því eftir smástund. Fáðu þér að borða, við eigum nóg af mat. Fáðu þér að sofa ef þú ert þreyttur, við eigum nóg af draumum til að lána þér. Láttu eins og heima hjá þér. Fæturna upp á borð, losaðu beltið, farðu úr skónum. Hérna er listi af hlutum sem þú getur eytt ævinni í, þú velur hvað sem þú vilt og við sjáum um restina. Veldu þér áhugamál, kunnáttu og starf og vertu svo öskrandi kátur í hvert skipti sem þú lærir eitthvað nýtt. Vertu bara viss um að hvert sem þú ferð og hvað sem þú gerir, ekki halda að þú vitir hvernig lífið mun æxlast. Þú hefur ekki hugmynd um það.

Mikið getur maður verið vitlaus. Að halda að maður hafi eitthvað um heimsmyndina að segja. "Heimurinn ER svona og hinseginn." Nei, því miður. Þú hefur bara upplifað brotabrot af honum og þér fannst hann svona. Það er ekkert sem segir að nokkur annar maður sé sammála þér, eða þá að þetta sé á nokkurn hátt rétt staðhæfing. Það að ég rífist og skammist og kvarti yfir því að heimurinn sé vondur, illur og ósanngjarn er kjánalegt út af því að þetta er bara upplifunin sem ég hef af honum. Það er eins og að horfa á einn þátt af Ghost Whisperer og gera upp hug sinn varðandi alla sjónvarpsþætti sem gerðir hafa verið (þ.e. að allir þættir séu gjörsamlega glataðir). "Þetta er bara svona." Nei, því miður. Ekkert endilega.

Þess vegna er svo skemmtilegt að lenda í aðstæðum sem breyta því hvernig þú lítur á tilveruna. Svona kaflaskipti í lífinu þar sem þú getur með hreinni samvisku yfirgefið þann sem þú varst, ekki með eftirsjá heldur lærdómsblik í augunum, og orðið eitthvað annað. Þetta er afskaplega svipað og þegar Pokémon skrímsli umbreytast og verða öflugri. Jújú, Pikachu var alveg sætur fyrst með skottið sitt og brosið, en eftir level up-ið gerir hann meiri damage og er sneggri. Það þarf ekkert að ræða það hvort er skárri kostur. Það er undarlegt hvernig lífið kemur manni á óvart með því að láta mann halda að heimurinn sé á einn veg og koma svo með aðstæður þar sem eitthvað nýtt er kynnt til sögunnar sem afsannar allt sem þú hélst. Eitthvað gott. Eitthvað Anna-ð.

Annars eru hér nokkur youtube myndbönd sem ég var að uploada:

Ég á rafmagnstrommunum mínum
Lífsins labb - Söngkeppnisatriði Das Dos Pervertos 2006
The Mirror Me - Stuttmynd síðan í fyrra

Kv. Guðni


Posted at 10:39 pm by 23glb
Álit (6)  

Wednesday, February 27, 2008
No way to go but up

Fyndið.

Sama hversu dimmur og drungalegur veturinn virðist, sama hversu skýjað, kalt, blautt og ógeðslegt veðrið kann að verða, sama hversu niðursokkinn maður verður í sitt eigið volæði, sjálfsvorkunn og máttleysi í vetrarkuldanum, þá er sólin fáránlega góð í því að birtast þegar síst skyldi. Skyndilega eru morgnarnir orðnir bjartari, kvöldin orðin lengri, dagarnir hlýjari. Það sem eitt sinn virtist vonlaust er nú skyndilega orðið geranlegt og rúmlega það. Auðvelt, jafnvel. En þannig virkar þetta allt saman. Maður getur gert hvað sem er, svo lengi sem maður hefur ástæðu til þess. Það er ekki nóg að há trylltar baráttur á hverjum einasta degi ef það er til þess eins að lifa af. Riddarinn sveiflar sverðinu fyrir föðurlandið, konuna og krakkann. Án þessara þriggja ástæðna er hann ráðvilltur og veikur fyrir. Tómur.

Því er það afskaplega ánægjulegt að sjá sólina koma upp þegar á átti alls ekki von á því. Rétt eins og þegar Jax fær skyndilega sjálfstraustið á nýjan leik í lok Mortal Kombat: Annihilation, rífur af sér járnhendurnar og buffar kentárinn Motaro í spað, þá hljómaði einhverskonar hetjulegt techno-lag í hausnum á mér um helgina og allt gekk skyndilega að óskum. Eða hvort það var techno? Kannski var það "Ljúfa Anna". Jú, sennilega.

Þó skal auðvitað sem minnst talað um Eurovision skandalinn, þar sem hræðilegi, útþynnti, klisjukenndi og smeðjulegi dans-dúettinn "Hommi og kelling" fóru með afgerandi sigur af hólmi, þrátt fyrir gríðarlega fyndið og flott atriði Gillzeneggers og félaga. Mér hefur sjaldan á ævinni verið jafn misboðið. Svo maður vitni nú í Gillz á vefsíðunni hans, varðandi ódauðleg ummæli Friðriks um tunnuna: "Friðrik Ómar segir setninguna, áhorfendur púa á hann og hann fattar að hann gerði í buxurnar. Við félagarnir vorum kannski berir að ofan, en við vorum ekki með allt niðrum okkur." Sannari orð er erfitt að finna.

Farið ykkur ekki að voða. Verið gríðarlega hamingjusöm, takk.


Posted at 10:19 pm by 23glb
Álit (5)  

Next Page