Entry: Djúpa laugin Friday, March 28, 2008



Jæja, no going back now, eins og maðurinn sagði. Ég er búinn að sækja um á netinu, senda inn skriflega umsókn og skila möppu með fimm verkum. Já, ég er opinberlega búinn að sækja um í Listaháskóla Íslands.

Deildin ku vera Fræði og framkvæmd, en það er deild sem er undir sama hatti og leiklistardeildin. Sjáum til hvað gerist. Í möppunni, eða portifólíóinu, sem ég skilaði inn voru fimm verk sem ég hef unnið að í gegnum tíðina.

MA komiks - Allar 50 teiknimyndasögurnar
Hlekkir - Örleikrit sem var sett upp á stóra sviði Þjóðleikhússins í fyrra
Jólagreinin í Hann/Hún tímaritinu - Grein um karlmannlegustu leiðina til að útvega jólatré
Riddarinn - Smásaga
Work in progress - Heimspekilegt spennuleikrit um sársaukavél

Krossið putta, fætur og eyru. Vonum það besta. Það komast 8-10 manns inn.

   6 comments

sirry sif sigurlaugar
April 16, 2008   06:14 PM PDT
 
kross, kross
Elsa
April 10, 2008   04:42 PM PDT
 
Yeah.. flott hjá þér!
María
April 2, 2008   02:48 PM PDT
 
Go Guðni, go Guðni! *dansar Guðni-kemst-inn-dansinn*
Guðni
March 31, 2008   04:06 PM PDT
 
Frægðarsól okkar er rétt byrjuð að rísa, Jón. Prepare thyself: A storm is brewing in the distance...
Jörn
March 31, 2008   01:18 PM PDT
 
Does that mean Das Dos Pervertos becomes legit?...
Óli minn
March 31, 2008   02:55 AM PDT
 
Guðni minn, ég vona svo iiiiiiiiiiiiinnilega að þú komist inn. Rithönd þín á það ekki skilið að fólk les hana ekki (og tvöfaldar neitanir eru bannaðar!).

3thumbs up dude!

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments