|
Ef eitthvað er þess virði að það sé gert, þá er það þess virði að það verði gert vel. Þ.a.l. er eitthvað sem ekki er gert vel, ekki þess virði að það sé gert. Þessi bloggsíða er ekki vel gerð. Því er áætlun mín einföld: Beil. Þessi bloggsíða hefur ekki verið að standa sig síðustu átján mánuði eða svo. Loforð voru gefin varðandi komik og alltaf stóð síðan til endurbóta. Því miður virðist ég einfaldlega ekki hafa áhuga á því að blogga lengur. Það er ekki mitt "thing" lengur. Það var það í MA. Ekki lengur. Af mér er þetta að frétta: Ég er í HÍ í kvikmyndafræði, fer hugsanlega í LHÍ á næsta ári, á mjög sæta kærustu sem heitir Anna og er úr Bárðadalnum, leigi með meistara Ólafi Sveini og frú íbúð stutt frá Kringlunni, stefni á heimsyfirráð innan sjö mánaða og er enn afar rauðhærður. Þannig að: Þessi bloggsíða er hérmeð lögð niður. Ég þakka öllum þeim sem lögðu leið sína hingað í gegnum tíðina, síðan sjálf er orðin ca. fjögurra ára. Það er ágætis líftími fyrir bloggsíðu og því er engin ástæða til að gráta hana. Hún var löngu farin hvort eð er. Eina eftirsjá mín er að gleyma myndinni af Sigurði í kvennmansklæðum, hún var uppi í rúmt ár. Það stóð ekki til. Takk kærlega fyrir mig.
|
| Magni Þór January 17, 2009 11:37 PM PST Bless! | ||
| Görn January 4, 2009 08:09 AM PST leigir með ólafi sveini og frú íbúð? Hvað varð um hörpu? | ||
| Leave a Comment: |